Jóga Nídra gegn streitu og þreytu

13/08/2015 19:30

Nídra þýðir svefn og Jóga Nídra  má þýða sem jógískan svefn eða liggjandi hugleiðslu. Þú ert leiddur inn í mjög djúpa slökun þar sem þú nærð að aftengja þig frá allri spennu, álagi og streitu. Jóga Nídra er
hugleiðsluaðferð sem auðvelt er að ná tökum á, þar sem þú þarft ekki annað en að leggjast í þægilega stöðu og hlusta. Við flæðum inn í slökun sem veitir líkama og huga kyrrð og frið, og komum tilbaka full af orku og ánægju.

Jóga Nídra vinnur gegn streitu og þreytu sem einkennir svo mjög nútíma samfélag. Streita og
streitutengd vandamál eru undirliggjandi þáttur í mörgum sjúkdómum.

Jóga Nídra hefur reynst mjög vel fyrir þá sem eiga við svefnerfiðleika að stríða, fyrir þá sem
eru að takast á við álag og spennu og fyrir þá sem einfaldlega vilja ná að kyrra hugann og öðlast meiri orku

Rannsóknir sýna að í Jóga Nídra örvar þú góðu hormónin í líkamanum s.s. endorfín og serotonin, sem
þýðir að þú einfaldlega finnur fyrir meiri vellíðan.

Í byrjun hvers tíma gerum við nokkrar rólegar og endurnærandi jógaæfingar.

Nýtt námskeið í Jóga Nídra hefst fimmtudaginn13. ágúst kl. 19.30 kennt er þrjá fimmtudaga í Jógastöð Selfoss að Austurvegi 21 c.
Kennari er Rósa Traustadóttir

Námskeiðið kostar kr. 6.900 og greitt í fyrsta tíma.